- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Árshátíð Holtaskóla var haldin í dag í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Þema árshátíðarinnar í ár var bíómyndir og íþróttir, en nemendur fengu að velja þema hátíðarinnar á lýðræðisráðsfundum og kosningu.
Kynnar hátíðarinnar voru þau Elva Björg Ragnarsdóttir og Óliver Daði Rúnarsson, nemendur úr 10. bekk. Nemendur úr öllum árgöngum skólans stigu á svið og sýndu glæsileg atriði. Augljóst er að mikil vinna og metnaður lá að baki hverju atriði og gaman var að sjá einbeitingu og gleði skína úr andlitum nemenda. Atriðin voru fjölbreytt og gaman var að sjá hversu hugmyndaríkir og hugrakkir nemendur voru þar sem hæfileikar allra fengu svo sannarlega að njóta sín. Starfsmannaatriðið var að sjálfsögðu á sínum stað, þar sem starfsfólk skólans steig á stokk með óvænt dansatriði sem sló í gegn hjá nemendum.
Að lokinni dagskrá var nemendum og gestum boðið upp á nýbakaða skúffuköku, ilmandi kaffi og safa. Það var vel við hæfi að enda þessa glæsilegu hátíð með notalegri samveru.
Hér má sjá nokkrar myndir frá árshátíðinni, en fleiri myndir og myndband frá árshátíðinni er væntanlegt eftir páska