- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Senn líður að árshátíð Holtaskóla en hún verður haldin næsta föstudag. Í þessari viku munu nemendur æfa atriðin sín af fullum krafti. Stundaskrár halda sér að mestu leyti en valgreinar á unglingastigi falla niður. Á árshátíðardaginn, föstudaginn 27. mars, fellur hefðbundin kennsla niður og frístund verður lokuð. Þennan dag eiga nemendur að mæta í heimastofur kl. 10:30 nema umsjónarkennarar ákveði annað.
Árshátíðin hefst kl. 11:00 í íþróttahúsinu við Sunnubraut og verða þar tekin frá sæti fyrir hvern árgang í íþróttasalnum, en gestir fá sæti í stúku á efri hæð. Forráðamenn eru hvattir til að mæta. Að lokinni dagskrá verður boðið upp á skúffuköku, safa og kaffi í B-sal en þá eru nemendur í umsjá forráðamanna.
Við hlökkum til að eiga skemmtilega stund saman og minnum nemendur á að mæta stundvíslega.