- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Kæru foreldrar/forráðamenn.
Miðvikudagurinn 21. apríl er skertur nemendadagur í Holtaskóla. Kennslu lýkur kl. 11:15 þennan dag, ekki er boðið upp á hádegisverð fyrir nemendur. Frístund er opin fyrir þau börn sem þar eru skráð.
Sumardagurinn fyrsti er á fimmtudaginn og skólinn lokaður sem og föstudaginn 23. apríl, en þá er starfsdagur hjá kennurum og nemendur þ.a.l. í fríi og frístund lokuð.
Skóladagatal fyrir skólaárið 2021-2022 hefur verið samþykkt af skólaráði Holtaskóla sem og fræðsluráði. Skóladagatalið má finna á heimasíðu skólans og með því að smella hér.
Gleðilegt sumar.