Mánudaginn 16. nóvember var degi íslenskrar tungu fagnað í Holtaskóla með söng og skemmtilegri samveru nemenda og starfsfólks. Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar og er sannarlega tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi íslenskunnar, fjölbreytileika hennar og þeim menningarverðmætum sem í henni felast. Af þessu tilefni komu nemendur á yngsta stigi saman á sal skólans þar sem hver árgangur flutti eitt lag fyrir samnemendur sína. Nemendur sungu svo saman lagið Á íslensku má alltaf finna svar, en textinn er eftir Þórarinn Eldjárn. Á miðstigi sungu nemendur saman vel valin lög við mikla gleði og góðar undirtektir nemenda. Nemendur á elsta stigi komu einnig saman og fögnuðu deginum með samsöng og skiptust árgangar meðal annars á að syngja erindi laganna. Samverustundunum var stýrt af Hörpu Jóhannsdóttur kennara og færum við henni þakkir fyrir einstaklega vel heppnaðar og skemmtilegar samverustundir.