Glæsilegur árangur Holtaskóla í First Lego League

Laugardaginn 14. nóvember fór fram First Lego League keppni fram í Háskólabíói. Holtaskóli sendi að þessu sinni tvö lið til keppni og stóðu nemendur okkar sig með miklum sóma. Alls tóku þátt í keppninni 21 lið frá 17 grunnskólum víðsvegar af landinu, samtals nærri 200 þátttakendur.

First Lego League er alþjóðleg keppni sem hefur það að markmiði að efla áhuga og færni ungs fólks á sviði vísinda, tækni, verkfræði og stærðfræði. Jafnframt er lögð rík áhersla á skapandi hugsun, lausnaleit, gagnrýna hugsun, samskipti og samvinnu.

Þema keppninnar í ár var Bioglow, eða lífljómi, þar sem sjónum var beint að líffræðilegri fjölbreytni, vistkerfum og því hvernig nýta má tækni og nýsköpun til að skilja og vernda náttúruna. Undanfarnar vikur hafa nemendur unnið að undirbúningi keppninnar, hannað og forritað LEGO-vélmenni, þróað nýsköpunarhugmyndir og tekist á við fjölbreyttar áskoranir.

Annað lið Holtaskóla, Fat Cats náði einstaklega glæsilegum árangri í keppninni og hlaut alls þrenn verðlaun. Liðið varð í 2. sæti í vélmennakappleiknum, í 2. sæti fyrir bestu hönnun og forritun vélmennis og einnig hlaut liðið jafningaverðlaun. Það er sérstaklega ánægjulegt að Fat Cats hafi hlotið jafningjaverðlaun keppninnar en til þeirra verðlauna tilnefna keppendur sjálfir önnur lið. Verðlaunin eru veitt fyrir góðan keppnisanda, virðingu, jákvæð samskipti og að vera öðrum keppendum góð fyrirmynd. Viðurkenningin er okkur afar dýrmæt enda endurspeglar hún einkunnarorð Holtaskóla – virðingu, ábyrgð, virkni og ánægju.

Þátttaka í verkefni sem þessu er dýrmætt námstækifæri þar sem nemendur fá að virkja styrkleika sína, takast á við krefjandi verkefni, gera tilraunir, læra af mistökum og finna lausnir í sameiningu.

Við erum mjög stolt af báðum liðum Holtaskóla og þeim metnaði, elju og sköpunargleði sem nemendur hafa sýnt í gegnum allt verkefnið. Við færum nemendum og leiðbeinendum þeirra, þeim Marteini Einarssyni og Sigrúnu Birtu Sigurðardóttur, innilegar hamingjuóskir með frábæran árangur.

 

Áfram Holtaskóli!