Á mánudaginn fékk Holtaskóli að gjöf snjallsjónauka af tegundinni Seestar S30 Pro Total Solar Eclipse Edition. Þessi tegund er viðhafnarútgáfa af vinsælum snjallsjónauka og mun nýtast vel, bæði til að skoða himingeiminn, t.d. sól, tungl og reikistjörnur, en einnig aðra hluti í náttúrunni svosem fugla og dýr. Með sjónaukanum er bæði hægt að taka myndir og myndbönd sem hentar vel fyrir fjölbreytta og lifandi vísindafræðslu.
Þessi gjöf, sem allir grunnskólar innan Reykjanes jarðvangs fengu, er að frumkvæði Reykjanes jarðvangs með veglegum styrk frá bæði Kadeco og atNorth gagnaverinu. Jarðvangurinn lagði út fyrir því sem uppá vantaði og Sævar Helgi Bragason hefur lagt sitt af mörkum í þessari gjöf, því honum er mikið í mun að opna þennan heim fyrir skólabörnum.
Við í Holtaskóla þökkum kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem mun svo sannarlega nýtast vel til að gera nám nemenda fjölbreyttara.