Holtasprettur og vorhátíð 2026

Í gær var haldinn Holtasprettur, en þá kepptu nemendur í margvíslegum þrautum þar sem markmiðið var að standa uppi sem sigurvegari síns stigs. Veður var með betra móti og var Holtasprettur því haldinn að mestu leyti úti á skólalóð, en þrjár stöðvar voru inn í skólanum. Nemendur kepptu í pútti, stígvélakasti, negldu nagla í spýtu, pöruðu saman samstæður, keilu, fótbolta og fleirri skemmtilegum þrautum. Mikill metnaður var hjá liðunum sem mættu vel undirbúin til leiks, en hver ágangur átti sinn lit, auk þess sem nemendur voru búin að föndra hvatningarspjöld og jafnvel búninga til að hvetja sitt lið áfram. Eftir harða keppni voru það nemendur 4. HM sem stóðu uppi sem sigurvegarar yngsta stigs. Á miðstigi sigraði 6. EH og á unglingastigi voru það nemendur 10. RI sem sigruðu, en bæði 4. HM og 10. RI vörðu Holtasprettstitilinn sinn frá því í fyrra. Við óskum þessum bekkjum innilega til hamingju með sigurinn, góða samvinnu og seiglu.

Hér má sjá myndir frá Holtaspretti

Í dag var haldin vorhátíð Holtaskóla en veðrið lék við okkar. Hátíðin byrjaði á litahlaupi eins og síðastliðin ár, en Brunavarnir Suðurnesja sáu um að bleyta aðeins í nemendum áður en hlaupið hófst. Gaman var að sjá litadýrðina í hlaupinu sem og gleði nemenda og starfsmanna sem allir skemmtu sér stórkostlega vel. Eftir hlaupið var Karnival stemning á skólalóðinni, en hægt var að fara ýmsa leiki, fá andlitsmálningu og boðið var upp á popp, candyfloss og grillaðar pylsur.

Við viljum þakka kærlega nemendum, forsjáraðilum, starfsmönnum og öllum þeim sem hjálpuðu til við að gera þessa daga eftirminnanlega og frábæra!

Hér má sjá myndir frá vorhátíðinni