Holtasprettur, vorhátíð og skólaslit

Upplýsingar um síðustu dagana þetta skólaárið.

 

Holtasprettur mánudaginn 8. júní kl. 09:30-11:00

Nemendur mæta í heimastofu kl. 09:30. Dagskráin hefst kl. 09:40 og lýkur um kl.11:00. Holtasprettur er keppni í fjölbreyttum þrautum sem gefa stig. Sigurvegarar verða krýndir á hverju stigi. Nemendur eru hvattir til að koma i eftirfarandi litum eins og hægt er:

Enginn hádegismatur er þennan dag. Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir.

 

Vorhátíð þriðjudaginn 9. júní

Vorhátíð:

Nemendur mæta í heimastofu kl. 10:00. Dagskráin hefst kl. 10:15 og lýkur um kl. 11:30. Nemendur eru vinsamlegast beðnir um að klæða sig eftir veðri. Foreldrar velkomnir.

 

Dagskrá:

Kl. 10:15 Regnbogahlaup (Color Run) – Allir hvattir til að mæta í hvítu/ljósu.

Kl. 10:40 Karnivalstemning – leikir, popp, candyfloss og grillaðar pylsur.

 

Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir.

 

Skólaslit í Hljómahöll miðvikudaginn 10. júní

Dagskrá:

Kl. 09:00 - 1.-5. bekkir

Kl. 10:30 - 6.-10. bekkur (útskrift 10. bekkinga)

 

Nemendur eru minntir á að vera snyrtilegir til fara og foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum.

 

Að skólaslitum loknum er nemendum 10. bekkja og foreldrum þeirra boðið til kaffisamsætis í Merkinesi.