Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Í dag fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Stapa, Hljómahöll. Þar kepptu fjórtán nemendur frá sjö grunnskólum Reykjanesbæjar. Keppnin hefst formlega á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember og lýkur með lokakeppninni. Markmið keppninnar er fyrst og fremst að vekja athygli á vönduðum upplestri og framsögn.

Fulltrúar Holtaskóla voru þeir Birkir Frosti Kjartansson og Hilmar Geir Geirsson. Ingibjörg Jóhannsdóttir kennari og Helga Hildur Snorradóttir skólastjóri sáu um þjálfun nemenda fyrir lokakeppnina, en mikil undirbúningsvinna liggur að baki vel æfðum upplestri. Rithöfundur keppninnar var Ólafur Páll Jónsson og lásu nemendur svipmyndir úr skáldsögunni Fjársjóðsleit í Granada ásamt því að flytja tvö ljóð. Dómarar keppninnar voru þau Guðbjörg Sveinsdóttir, Anna Karlsdóttir Taylor og Sighvatur Jónsson. Nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fluttu tónlistaratriði í upphafi keppninnar og á milli atriða. Ingibjörg Einarsdóttir, formaður Radda, flutti ávarp þar sem 30 ár eru liðin frá því að keppnin var sett á laggirnar. Helgi Arnarson, sviðsstjóri Menntasviðs flutti ávarp og afhenti keppendum bókina Skólastjórinn, eftir Ævar Þór Benediktsson, að gjöf ásamt rós.

Eftir að dómarar höfðu komist að niðurstöðu voru verðlaunahafar kynntir. Þriðja sætið hlaut Hilmar Geir Geirsson, annað sæti hlaut nemandi Myllubakkaskóla og fyrsta sæti hlaut Birkir Frosti Kjartansson.

 Við óskum Hilmari Geir og Birki Frosta innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu og sigursætin.

 Hér má sjá nokkrar myndir frá keppninni