Öskudagur 2026

Í dag var öskudagurinn haldinn hátíðlegur í Holtaskóla með tilheyrandi gleði og fjöri. Margt var um að vera og gátu nemendur valið á milli margra skemmtilegra stöðva. Á stöðvunum var meðal annars hægt að spila, lita, syngja í karaoke, dansa Just Dance, blöðrudiskó, perla, gagaball, Kahoot og margt annað skemmtilegt var á boðstólnum.

Gaman var að sjá hversu margir nemendur og starfsmenn mættu í búningum, en nemendaráð skólans fór á milli stiga og valdi flottasta, fyndnasta og  frumlegasta búninginn auk þess sem besti kennarabúningurinn var valinn. Dagurinn heppnaðist afar vel, einkenndist af gleði og fjöri og ánægjulegt að sjá nemendur og starfsfólk njóta dagsins saman.

Hér má sjá myndir frá deginum