Samskiptadagur, þriðjudaginn 6. október

Samskiptadagur verður í Holtaskóla þriðjudaginn 6. október næstkomandi en þennan dag mæta foreldrar og nemendur til viðtals til umsjónarkennara. Bókun viðtala fer fram á www.mentor.is en skráningu lýkur í dag, föstudag.

Markmið með samskiptadegi er m.a. að foreldrar, nemandi og kennari ræði m.a. saman um niðurstöður lesfimi, heimalestur og náms- og félagslega stöðu nemandans. Sérgreinakennarar verða til viðtals þennan dag sem og stjórnendur.

Frístund er opin fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.

Óskilamunir munu liggja frammi á göngum skólans.