- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Í gær var Ljósanótt sett í skrúðgarðinum við hátíðlega athöfn. 3., 7. og 10. bekkur gengu saman yfir í skrúðgarðinn og hlýddu þar á Vilhjálm Árnason, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, flytja erindi, Ljósanæturfáninn var dreginn að húni og hátíðin formlega sett. Arnór Sölvason stýrði dagskránni með glæsibrag. Páll Óskar söng nokkur lög við mikinn fögnuð viðstaddra og lauk setningunni með því að allir sungu saman Ljósanæturlagið.
Í dag gerðu nemendur og starfsfólk Holtaskóla sér glaðan dag og héldu Ljósanæturpartý í portinu hjá skólanum. Boðið var upp á andlitsmálningu, snúsnú, asna, stinger, skottleik, tetris og marga aðra skemmtilega leiki. Hjörleifur trúbador kom og spilaði fyrir okkur vinsæl og skemmtileg lög. Veðrið lék við okkur og skemmtu allir sér frábærlega.
Njótið Ljósanæturhelgarinnar kæru nemendur og forsjáraðilar og skemmtum okkur fallega saman.