- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Í dag fór fram skólakeppni Stóru upplestrarkepnninnar í Holtaskóla. Fulltrúar bekkjanna voru þau Aron Leví Aldísarson, Axel Breki Daníelsson, Birkir Frosti Kjartansson, Dýrleif Eriksdóttir, Guðrún Tinna Óladóttir, Hilmar Geir Geirsson, Ingunn Harpa Elvarsdóttir, Maron Logi Austmann Evertsson, Matthías Karvel Guðjónsson og Ólafur Frosti Brynjarsson, en þau voru valin eftir bekkjarkeppni. Nemendur lásu textabrot úr skáldsögunni Benjamín Dúfa eftir Friðrik Erlingsson og ljóð sem þau völdu sjálf.
Dómarar í keppninni voru þær Ásgerður Þorgeirsdóttir, fyrrum skólastjóri Njarðvíkurskóla, Guðbjörg Rut Þórisdóttir, læsisfræðingur hjá MMS, og Guðlaug María Lewis, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar. Þær fengu það vandasama verkefni að velja sigurvegara úr þessum sterka hópi lesara. Máltækið æfingin skapar meistarann átti svo sannarlega við þennan hóp nemenda, en það hefur sannarlega sýnt sig að með markvissri þjálfun og æfingu þá hafa allir nemendur bætt árangur sinn í upplestri svo um munar.
Sigurvegarar skólakeppninnar í ár voru þeir Birkir Frosti Kjartansson og Hilmar Geir Geirsson. Varamaður er Ólafur Frosti Brynjarsson. Þeir verða fulltrúar Holtaskóla í aðalkeppni Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin verður í Hljómahöll þriðjudaginn 10. mars, en þá keppa allir grunnskólar Reykjanesbæjar í vönduðum upplestri. Helga Hildur Snorradóttir, skólastjóri, afhenti keppendum viðurkenningarskjal og glaðning í lok keppninnar.
Við óskum öllum keppendum til hamingju með árangurinn, færum dómnefnd okkar bestu þakkir fyrir sín störf og þökkum 7. bekk fyrir að vera einstaklega góðir áhorfendur. Við hlökkum til að fylgjast með fulltrúum okkar í aðalkeppninni í mars.