- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Miðvikudaginn 10. júní, fóru fram skólaslit og útskrift 10. bekkja í Hljómahölli. Skólaslit hjá yngra stigi hófst kl. 9:00 og eldra stigi kl. 10:30. Nemendur í 1.-9. bekk komu í stafrófsröð upp á svið og fengu afhent umslag frá umsjónarkennurum sínum með vitnisburðarblaði, hrósskjölum, framvindu í lesferli og samantekt úr Læsi. Helga Hildur, skólastjóri Holtaskóla flutti ávarp þar sem hún fór yfir helstu viðburði skólaársins, ræddi um hversu þakklát hún er fyrir skólasamfélagið okkar, minnti nemendur á að vera duglegir að lesa og hversu ánægjulegt það verður að sameinast undir einu þaki á næsta skólaári. Lestrarömmum skólans var færður þakklætisvottur fyrir þeirra framlag, en þær gegna mikilvægu hlutverki í lestrarnámi yngstu nemenda skólans. Við þökkum þeim Ástríði Sigurvinsdóttur, Höllu Tómasdóttur, Lilju Jóhannsdóttur, Salvöru Gunnarsdóttur, Sigríði Bílddal, Þórunni Friðriksdóttur og Þórunni Þorborgsdóttur kærlega fyrir sitt framlag. Á skólaslitum yngra stigs spilaði Björn Bóas Birkisson tvö þjóðlög á sópran blokkflautu og Jelena Raschke spilaði undir á píanó og Elísa Hanna Jóhannsdóttir spilaði á píanó lagið Solas eftir Jamie Duffy.
Nemendur 10. bekkjar voru útskrifaðir við hátíðlega stund. Hljómsveit Holtaskóla opnaði hátíðina með frumsömdu lagi, en hljómsveitina skipa þau Róbert Örn Bjarnason á gítar, Bartosz Krokoszynski á trommur og Harpa Jóhannsdóttir, kennari, á bassa.Björk Karlsdóttir og Týr Kristjánsson fluttu ávarp nemenda. Silja María Albertsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, afhenti námsráðgjafarósina, en hún er veitt þeim nemendum sem tekið hafa sérstökum framförum í skólagöngu sinni, til dæmis með breytti viðhorfi til náms, bættri hegðun, aukinni jákvæðni og metnaði. Það voru þau Indía Frostadóttir og Týr Kristjánsson sem hlutu hana fyrir að hafa lagt sig fram af einlægni og metnaði, sýnt frumkvæði í náminu og jákvætt hugarfar. Sóley Von Taylor spilaði Concert í a-moll eftir Antonio Vivaldi á fiðlu og Elvar María Elvarsdóttir spilaði á píanó Passacaglia eftir Georg Friedrich Handel í útsetningu Halvorsen við undirleik Sigrúnu Gróu Magnúsdóttir. Við útskrift fengu nemendur afhentan vitnisburð og skólatrefil Holtaskóla auk þess sem nokkrir nemendur fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur.
Við óskum öllum nemendum 10. bekkja til hamingju með útskriftina og góðs gengis í framtíðinni.