Starfsdagur og samskiptadagur

Starfsdagur er í Holtaskóla miðvikudaginn 28. janúar. Þann dag er engin kennsla hjá nemendum og frístund lokuð.

Fimmtudaginn 29. janúar er samskiptadagur í Holtaskóla, en þann dag mæta foreldrar og nemendur til viðtals við umsjónarkennara. Bókun viðtala er hafin og fer fram á Mentor en lokadagur skráninga er þriðjudagurinn 27. janúar.