Stjörnu-Sævar heimsækir Holtaskóla

Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, kom og heimsótti alla nemendur Holtaskóla í síðustu viku og fræddi þá um almyrkva sem verður 12. ágúst. Það var Reykjanes jarðvangur og GeoCamp Iceland sem buðu öllum grunnskólum innan Reykjanes jarðvangs upp á þessa fræðslu.

Síðdegis miðvikudaginn 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Reykjanesskaga í fyrsta sinn síðan árið 1330. Það er afar mikilvægt að fræða börn um hvernig fylgjast eigi með myrkvanum á öruggan hátt, en ólíklegt er að þau fái tækifæri til að upplifa almyrkva aftur þar sem næsta tækifæri á Reykjanesi verður árið 2245. Í lok skólaárs fá nemendur sérstök gleraugu að gjöf til að þau geti fylgst með almyrkvanum á öruggan hátt. Hægt er að sækja sér upplýsingar um almyrkvann, meðal annars hvar er gott að vera staðsettur á meðan á honum stendur, á heimasíðunni www.solmyrkvi2026.is