Holtasprettur og vorhátíð 2025

Á miðvikudaginn var haldinn Holtasprettur og kepptu þá bekkir í 1.-10. bekk sín á milli í margvíslegum þrautum með það að markmiði að standa uppi sem sigurvegari síns stigs. Vegna veðurs var Holtasprettur að þessu sinni inn í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Þar kepptu nemendur m.a. í pútti, stígvélakasti, negla í spýtu, samstæðuspilum, keilu. Áður en verðlaunaafhending hófst og á meðan stig voru talin fögnuðu allir nemendur liði Holtaskóla í Skólahreysti, en þau urðu Skólahreystimeistrarar núna í maí. Einnig fögnuðu allir Tómasi Loga sem varð á skólaárinu Skólaskákmeistari Suðurnesja á elsta stigi. Eftir harða keppni voru það nemendur í 3. ES sem stóðu uppi sem sigurvegarar á yngsta stigi. Á miðstigi sigraði 7. EHE og á unglingastigi voru það nemendur 9. RI sem sigruðu. Við óskum þessum bekkjum innilega til hamingju með sigurinn, frábæra samvinnu og seiglu. 

Hér má sjá myndir frá Holtaspretti

Í gær var haldin vorhátíð Holtaskóla við mikla gleði,  bæði nemenda, starfsmanna og foreldra/forráðamanna. Hátíðin byrjaði á litahlaupi þar sem Brunavarnir Suðurnesja sáu um að bleyta aðeins í nemendur áður en litahlaupið hófst. Þetta litríka hlaup vakti mikla gleði og var gaman að sjá litadýrðina eftir hlaupið. Á skólalóðinni var svo sannkölluð Karnival stemning en hægt var að fara m.a.  í Tetris, snúsnú, andlitsmálningu og boðið var upp á popp, candyfloss og grillaðar pylsur. 

Við viljum þakka nemendum, foreldrum/forráðamönnum, starfsmönnum og öðrum þeim sem hjálpuðu til við að gera þessa daga frábæra!

Hér má sjá myndir frá vorhátíðinni