Holtasprettur, vorhátíð og skólaslit

Upplýsingar um síðustu dagana þetta skólaárið.

Holtasprettur miðvikudaginn 4. júní kl. 09:30-11:00
Nemendur mæta í heimastofu kl. 09:30. Dagskráin hefst kl. 09:40 og lýkur um kl.11:00. Holtasprettur er keppni í fjölbreyttum þrautum sem gefa stig. Sigurvegarar verða krýndir á hverju stigi. Nemendur eru hvattir til að koma i eftirfarandi litum eins og hægt er:




Enginn hádegismatur er þennan dag. Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir.


Vorhátíð og skólaslit fimmtudaginn 5. júní

Vorhátíð:
Nemendur mæta í heimastofu kl. 10:00. Dagskráin hefst kl. 10:15 og lýkur um kl. 11:30. Nemendur eru vinsamlegast beðnir um að klæða sig eftir veðri. Foreldrar velkomnir.

Dagskrá:
Kl. 10:15 Regnbogahlaup (Color Run) - Allir hvattir til að mæta í hvítu/ljósu.
Kl. 10:40 Karnivalstemning - leikir, popp, candyfloss, grillaðar pylsur

Frístund er opin til kl. 15:30 þennan dag fyrir þá sem þar eru skráðir.


Skólaslit í Hljómahöll

Dagskrá:
Kl. 15:00 5.-7. bekkir.
Kl. 16:00 1.-4. bekkir.
Kl. 17:00 8. - 10. bekkir (útskrift 10. bekkinga)

Nemendur eru minntir á að vera snyrtilegir til fara og foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum.

Að skólaslitum loknum er nemendum 10. bekkja og foreldrum þeirra boðið til kaffisamsætis.