- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í frístund fyrir nemendur í 1.-4. bekk skólaárið 2025-2026. Sótt er um í gegnum Mitt Reykjanes, en þar er hlekkur í umsóknarkerfi sem heitir Vala frístund. Inn í Völu geta foreldrar séð allt sem tengist umsókninni. Völukerfið er hannað sem sjálfsafgreiðslukerfi og eiga foreldrar því að sækja þar um, óska eftir breytingum, skrá frístundaakstur (skráning opnar síðar) og segja upp frístundardvöl. Foreldrar þurfa að samþykkja boð um vistun sem berst í tölvupósti eftir að umsókn hefur verið afgreidd.
Foreldrar eru hvattir til þess að sækja um fyrir 31. maí svo að hægt sé að tryggja mönnun á frístundaheimilum út frá fjölda nemenda sem sækir um.
Skráning í frístundaakstur hefst eftir að skólastarf hefst í ágúst og munu foreldrar fá frekari upplýsingar þegar sú skráning fer af stað.
ATH! Foreldrar með systkini á leikskólunum; Akri, Gimli, Skógarási og Velli eða hjá dagforeldrum eru beðnir um að setja inn upplýsingar um systkini vegna fjölskylduafsláttar í reitinn Annað. Völukerfið heldur utan um systkini hjá öðrum leikskólum Reykjanesbæjar sem hafa tekið upp Völukerfið.
Við Sunnubraut | 230 Reykjanesbæ Sími á skrifstofu: 420-3500 Netfang: holtaskoli@holtaskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 420 3500 / holtaskoli@holtaskoli.is