Samskiptadagur 6. febrúar

Þriðjudaginn 6. febrúar er samskiptadagur í Holtaskóla. Foreldrar panta viðtalstíma í gegnum Mentor. Við hvetjum alla til að panta tíma sem hentar og ljúka því sem fyrst eða í síðasta lagi fyrir sunnudaginn 4. febrúar. Meðfylgjandi er tengill sem sýnir hvernig panta á viðtöl í gengum Mentor: https://www.youtube.com/watch?v=mEFYnJhJAsM

Óskilamunir verða á hverri starfsstöð fyrir sig, í nýja skólahúsnæðinu, í Hljómahöll og í Keili. Óskilamunir úr íþróttahúsinu verða á malarvellinum. Við biðjum alla foreldra að fara vel yfir óskilamuni en vegna plássleysi verður farið með þá óskilamuni sem eftir eru á malarvellinum í Rauða Krossinn að lokum samskiptadegi. Frístund er opin fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.