- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Í gær, fimmtudaginn 5. júní, fóru fram skólaslit og útskrift 10. bekkja í Hljómahöllinni. Skólaslitin voru þrískipt og mættu fyrst nemendur miðstigs kl. 15:00. Nemendur yngsta stigs mættu kl. 16:00 og nemendur elsta stigs kl. 17:00. Nemendur í 1.-9. bekk komu í stafrófsröð upp á svið og fengum afhent umslag með hrósskjölum og niðurstöðum lesfimi og Læsi frá umsjónarkennurum sínum. Helga Hildur, skólastjóri Holtaskóla, flutti ávarp þar sem hún fór yfir helstu viðburði skólaársins, hversu glæsilegur skólinn okkar er að verða og minnti á mikilvægi þess að nemendur gæfu sér tíma til þess að lesa í sumar. Lestrarömmum skólans var færður þakklætisvottur fyrir þeirra framlag, en á þessu skólaári hafa þær Ástríður Sigurvinsdóttir, Elín Jakobsdóttir, Guðríður Backmann Jóelsdóttir, Halla Tómasdóttir, Hólmfríður Guðmundsdóttir, Lilja Jóhannsdóttir, Salvör Gunnarsdóttir, Sigríður Bílddal og Þórunn Friðriksdóttir gefið tímann sinn til þess að hlusta á nemendur lesa svo þeir fái aukaþjálfun í lestri. Á yngsta stigi spilaði Sigurður Dominik, nemandi í 4. AÓB á klarinett lagið Super Trouper og spilaði Harpa Jóhannsdóttir undir á píanó. Á miðstigi spilaði Ólafur Frosti Brynjarsson, nemandi í 6. HM á trompet lagið Vorkvöld í Reykjavík og spilaði Harpa Jóhannsdótir undir á píanó.
Nemendur í 10. bekk voru útskrifaðir við hátíðlega stund. Birgir Freyr Benediktsson og Freyja Marý Davíðsdóttir fluttu ávarp nemenda. Silja María Albertsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, afhenti námsráðgjafarósina og í ár var það Nadía Rán Ingólfsdóttir, nemandi í 10. bekk sem hlaut hana. Tvær stúlkur úr 10. bekk léku lagið Every breath you take, en Maya Rogowska spilaði á píanó og Oliwia Blanka Kubiczek lék á gítar. Einnig spilaði Auður Eyfjörð Ingvarsdóttir, nemandi úr 10. bekk, lagið Solas á píanó. Við útskrift fengu nemendur afhentan vitnisburð og skólatrefil Holtaskóla. Auk þess fengu nokkrar nemendur viðurkenningu fyrir góðan árangur.
Við óskum öllum nemendum 10. bekkja til hamingju með útskriftina.
Hér má sjá myndir frá skólaslitum og útskrift 10. bekkja
Við Sunnubraut | 230 Reykjanesbæ Sími á skrifstofu: 420-3500 Netfang: holtaskoli@holtaskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 420 3500 / holtaskoli@holtaskoli.is