Vetrarfrí og starfsdagur

Mánudaginn 1. mars er vetrarfrí hjá okkur í Holtaskóla og þriðjudaginn 2. mars er starfsdagur hjá starfsfólki skólans. Frístund er lokuð báða dagana. Starfsdaginn ætlum við að nota í fræðslu fyrir verkefni sem er nú hafið í skólanum, Heilsueflandi grunnskóli sem að skólasamfélagið mun taka þátt í.